Helga fór til Hvergilands og kom aldrei aftur...

19.04.2006 19:44:36 / Helga

Maður verður að prófa allt!!...

http://helgamjoll.bloggar.is

!!!HÆTT HÉR OG BYRJUÐ HÉR OKEY? BÆJÓ!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 18:41:36 / Helga

Hversu sorglegt?

Já undanfarnir dagar eru þó búnir að vera afskaplega óviðburðarríkir af
minni hálfu get ég sagt ykkur..?ég skellti mér reyndar til Víkur um daginn,
svaka fjör:lol:

Allt þar á milli er bara búin að vera vinna og að læra..eða segjum það…
hverjir eru búnir með 45
0 orða frönsku ritgerð?

En annars var ég að spá FINNST YKKUR EKKI ÓGEÐ AÐ BORÐA APPELSÍNU MEÐMJÓLKURGLASI??
En ég ætla að slíta þessu hérna.. hafið það gott í dag

NB. KingKong er mynd sem ég lyfti ofan af fyrir, meistaraverk sem ég grét og
grét yfir eina nóttina hér heima.

Já alveg frábær mynd sem ég mæli með. Krúttulegur api og fjallmyndarlegir leikarar!


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 13:44:01 / Helga

KABÚMM

Hæmm??!
Jæja, jæja, jæja þá er ég mætt fyrir framan skjáinn enn eina ferðina! Langt er síðan ég bloggaði seinast eða kannski ekkert svo samt.. næstum vika. En málið er bara að ég er búin að vera mjög upptekin… vinna og læra....Maður leyfir sér aldrei að slaka á !??

Er reyndar að fara til Víkur núna um helgina og það sem á eftir að standa upp úr þar ernáttla að hitta hana SÖRU SÆTU Svo hittir maður ábyggilega líka MR SABB EÐA SÆVAR, á freehand forritinu honum að þakka sem og að ég gat klárað fjarnámið mitt, TAKK SÆVAR og svo JÓNAS en maður þarf reyndar að fá smá hjálp frá honum með prentaramál.. segi bara TAKK NASI fyrirfram . Auðvitað hittir maður líka Sigurbjörgu, Siggu, Dada / Sæmund, Önnu, Rögnu og svo þau Saxa, Fókus og Vöndu sætu og svo skötuhjúin ömmu og afa . En það er alltaf gaman að kíkja til Víkur.. það var meirað segja bra helvíti mikið stúð á rúntinu sko þegar maður kíkti síðast:p hehe alveg MASSÍFT SKO , ljúfir tónar og skemmtilegt fólk og svo eigum við Ísak eftir að missa okkur í páskaeggjaáti sem og allir ekki satt?!

Annars veit ég ekki hvort það sé gaman að lesa svona tuð eða stuð blogg (haha hér má finna rím og alles ) en svo er bara 7 skóladagar eftir, 3 próf og þá er þetta búið og þá er það eina sem bíður manns ein ljót önn með stúdentshúfuna á endanum , maður er bara að verða fullorðin… ..svo heilsar bara HÁSKÓLINN með breiðu brosi :haha: og framtíðin er “shining so bright” svo ég vitni aðeins í Silvíu nokkra Nótt.

» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2006 17:59:40 / Helga

Erfiðir dagar, en lífið heldur áfram :(

Sæl…
Komin í frí og er því mjög fegin. Búin að vera að vinna eins og mongó sem er kannski ágætt að því leitinu að maður verður ríkur og hugsar þá á meðan bara um það. Þess á milli lærir maður á örðu hundarðinu og reynir að næra sig á milli ef þess þarf. Líðandi helgi var fremur leiðinleg! Ball á föstud. sem ég kaus að fara ekki á , en Hekla skellti sér ásamt þeim Rakel og Aðalbjörgu og var víst svaka gaman, enda Jónsi og félagar snillingar á þessu sviði.

Fátt hef ég annars að segja nema það að ég var að koma úr bænum frá Stjána eyra (eyrnalæknirinn minn) og það er eitthvað bölvað vesen með þessi eyru mín. Heyri ekki orðið neitt og ef þetta fer ekki að lagast þarf sennilegast að leggja mig inn á sjúkrahúsið í bænum. En ég ætla að reyna að fá að vera þá á Selfossi svo að ég geti verið eitthvað í skólanum, en lyfjagjöfin er á 3ja tíma fresti. Vill ekki vera að missa úr skólanum þegar það eru aðeins 11 dagar eða eitthvað eftir.

En nóg af leiðindarbulli, vill þakka öllum því góða fólki sem hefur nennt að hlusta á tuðið í mér síðustu daga, það er alltaf gott að vita að það leynist þarna úti almennilegt og góðhjarta fólk sem er til staðar. Sem betur fer er til heiðarlegt og gott fólk, annað en sumir sem koma illa fram, takið þið það til ykkar sem það eiga.. Elska ykkur öll og enda svo þessa færslu með einustykki broskalli, en þetta mun vera sá eini í þessari færslu. ;)

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 22:22:38 / Helga

Svona verður dagurinn á morgun... hjá Helgu hinni

Helga?...er fædd þann 26. Janúar kl 18:55 árið 1987 á Selfossi en hefur þó alið allan sinn aldur einna helst í Þorlákshöfn, reyndar 1-2 ár í Hafnarfirði en það telst varla með. Frá barnæsku hefur hún lagt stund á hitt og þetta ásamt hefðbundinni skólagöngu og eftir að hún hóf nám í FSu sá hún sér farborða með kennslu og söng í hljómsveitinni Drifskaftið ( Lost hermdi eftir henni!)?Árið 2005 kom stóra tækifærið. Þá fékk Helga hlutverk í myndinni King Kong sem hlaut svo síðar óskarsverðlaunin og eftir það varð ekki aftur snúið. Síðan þá hefur hún leikið og samið handrit af myndum og stjórnað þeim og m.a leikið í fréttastofunni LE JOURNAL 1,2,3 sem hlaut metaðsókn samnemanda hennar.. 100 % mæting;).

» 6 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 17:13:55 / Helga

Hæj hæj.. virk í blogginu sko ;)

"Palli var einn í heiminum og þá var bankað"

Með þessu upphafsorðum byrja ég þessa færslu því hún er mjög einkennandi fyrir líðann minn núna.. og langar mér að enda þá á þessum orðum...

"Helga var ein í heiminum og þá var skellt hurðinni"

Takk fyrir mig og ef þið nenntuð að lesa þetta. Bless

» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 15:53:56 / Helga

Hálf trappa upp þroskastigann?

Hæj…Ég er ein af því fólki sem er síkvartandi undan því að ekkert sé að gerast og að allt sé svo fjandi leiðinlegt. “Vá hvað þetta var ömurlegur dagur… ohhh þetta verður ömurleg helgi!” Hafið þið kannski tekið eftir þessu?

Ákveðin hugsunarháttur opnaði augu mín á þessu…Það erum við sjálf sem látum allt vera svona leiðinlegt með því að vera hugsa að allt sé svo leiðinlegt o.sfrv. Nú sé ég að það þarf ekki allt að vera svona leiðinlegt, það eru til bjartar hliðar á tilverunnni og ef vel er að gáð þá er hægt að finna eitthvað áhugavert og skemmtilegt.

Þess vegna hef ég ákveðið að hætta að spá alltaf í hvað skemmtilegt er að gerast framundan, og taka bara einn dag fyrir í einu því það er hundleiðinlegt að vera bíða eftir því að e-ð gerist og missa svo af því sem er að gerast í kringum mann. Já, ég er ekki bara frá því að ég hafi tekið hálfa tröppu upp þroskastigann núna ;).

En vildi bara koma þessu hér að, endilega tjáið ykkur svo eitthvað… farin að klára að læra með jákvæðnina í fyrirrúmi ;) Hafið þið það bra gott og eigið gleðilegan dag ;) Bæjó.jón spæjó

Í alvöru ég verð að fara hætta segja þetta! Sagði þetta við kennarann minn um daginn! Haha hann bara hvað??

» 4 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 14:43:31 / Helga

Hæj allir saman - hvað syngur í dag?

Bonne journée et si tout va bien vous avez eu un beau jour. Je sais que j'ai eu un jour merveilleux comme mon chien de favori appelé Hnota,,, TAKA 2

Sælt veri fólkið!
long time no blog sagði eitt sinn merkur maður og segi ég það aftur… Það sem hefur annars á daga mína drifið er svo sem ekkert upp á neina torfu af fiskum, nema það að ég skellti mér á Stokkóeyri ásamt móður og ÍSAK SÆTA á let it be þar sem Hekla og Beta eru skærari en stjörnurnar á himninum. Svaka sýning sem ég mæi hiklaust með ?

Annars er málið að tjútta í kvöld í Hvíta húsinu þar sem sveitinn JET BLACK JOE mun trylla lýðinn. Reyndar verð ég að vinna til 12 en fer bara þegar ég er búin ;).

Allir svo að koma í Skálann að kaupa bensín er orðin fjandi góð sko að afgreiða það ;)

Seinna í ykkur heyra

» 5 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 17:23:51 / Helga

Róleg don´t panic!!

Anda rólega,, andaðu rólega Helga mín alveg róleg á því, þetta verður allt í góðu... þetta lagast alveg róleg...anda inn og út!! ARGGGG!!!! VAR AÐ KOMA HEIM OG HUNDURINN MEIG Á MIG (var svo glöð að sjá mig) ÉG ER EKKI SÁTT.. EKKI SÁTT SKO!!!

» 5 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 15:34:33 / Helga

23. mars - ágætis dagur alveg... - 24.mars enþá betri!

Hæmm var að koma heim :) Yrsa var svo mikið yndi og leyfði mér að fljóta með ;) TAKK TAKK :)

Annars var alveg ágætt í dag, kom í skólann kl, 10 þar sem ég var í eyðu/gati í fyrsta tíma. Svo voru það bara þrír tímar. Sálfræði var meira að segja svo stutt að maður gat farið heim og hér er ég.. annars afar spes tími.. skondar myndir af krakka og háværir trommutónar hehe dadarada Aðalheiður!
Annars ætlaði ég að vera svaka dugleg og flytja verkefnið mitt í dag en þorði því svo ekki þar sem það var eitthvað svo asnalegt, en talaði við Mr Blandon og hann sagði að það væri bara allt í lagi að flytja það! þannig aulinn ég!

Annars verður dagurinn á morgun líka stuttur er að fara til læknis og mæti bara í 2 fyrstu tímana ;) aðeins betra!... þá bruna ég bara í bæinn og fríka út þae ;)

Annars er ég ekkert að fara gera um helgina, kannski eitthvað flipp eða flopp.. en þanngað til næst þá segi ég bara bæ og enda á mínum frægu orðum.....

Bæjó jón Spæjó... - HELGA

NB - svo fylgir hér ein svaka sæt mynd síðan í sumar... sem ÉG tók btw.. Sumarið er bara alveg að fara að koma :)

artJámm sætt ekki satt ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.03.2006 18:21:30 / Helga

Hvort segiru að fara í LEITIR eða að SMALA? segi allavega sjálf að smala! Suður!

Þið eruð nú meiri SAUÐiRNIR! Maður vinnur 370 kall í HLUSTAÐU Á HLJÓÐIÐ Á FM og það er ekki einu sinni sagt til hamó við mann! Einnig var frú G.Aniston sú eina sem kommentaði á mitt stórfræga blogg hér fyrir neðan……og á lof skilið ;) U ARE THE BEST!

En þá eruð það spurningar sem þið megið svara:
1. Fílaru það feitt að fara í sund? ( ef svo er aumingja þú)
2. Á ég að segja þér leyndó!? Bara ef þú vilt segja mér leyndó…

Er það ekki svo SVÖTRUM FÖTUM BALL 7.apríl og SÖNGVAKEPPNI FRAMHALDSKÓLANNA 8.apríl?...held að það sé bara málið;)
Djöfull er ég annars með miklum bjána í tíma, þetta gat maður heyrt frussast upp úr ákveðnum aðila í dag:
Krakki, “Hundurinn minn er rosalegur í stærðfræði!” Hinn krakkinn, “-Nú? Krakki, “ég spurði hann hvað 99 mínus 99 væru og hann sagði ekkert!” Alltaf gaman að hlera í tíma á meðan maður er að sofna í tíma hjá JÖZUR :D

VERIÐI SVO DUGLEG AÐ TJÁ YKKUR! Annars set ég bara inn fleiri myndir af æskuárunum, er það sem þið viljið? Bara nefna það ;) luma alveg á nokkrum KLASSA GÓÐUM :);)
En allavega ég er farin út að HLAUPA ;) svo er það sturtan ahhhhh:)

NB. Hvers vegna ætli það hafi verið missed call frá ruslakallinum á gemsanum mínum? Hehe klikkaða tilvera ;)annars er ég alltaf að fá voða skrýtin símtöl...afmælisboð kl. 2 að nóttu til og nú þetta! Hvað næst!? br> Kv, frá HELGU “sem er 370 kjalli ríkari!” ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

18.03.2006 19:24:02 / Helga

Leikona, rík, söngkona, fræg og þekkt, teiti og já sagði ég RÍK!

Hæj hæ þið fáu sem nennið að skoða þessa ágætu bloggsíðu ;)

Helgin er sirka hálfnuð þegar þetta er ritað og það sem er búið af henni er alvg búið að vera hreint út sagt GEGGJAÐ en ég vann ferð til Spánar og svo hringdi ég inn í HLUSTAÐU Á HLJÓÐIÐ á Fm og vann hvorki meira né minna en 370 þús. kjell það var æði ;), en ég tel það vera ágætis vasapening. Er svo bara búin að taka því rólega hér í svítunni minni í Róm…

En allavega farið var hingað og þangað....flogið út og suður, norður og niður. Ég fékk tilboð um að gerast leikari í stórmyndinni Titanic 2 og á víst að leika á móti Leonardo nokkrum. Ég hafnaði því vegna þeirra anna sem fylgja því að vera heimsþekkt söngkona, hey það eru ekki allir svo heppnir að fá að taka við að snilla er Bono heitir ;). Ég ætla að leyfa mér að gerast svo djörf að tileinka mér sama vörumerki og hann og stunda það stíft og galið að bera sólgleraugu hvert sem ég kem, þannig bensín- stöðvar búið ykkur undir GRÓÐA!!...

Vegna fyrirhugaðar tónleikaferðar minnar til Bretlands í apríl verður páskafríið mitt fremur stressandi og tímafrekt þar sem ég þarf að mæta í hin og þessi boð, m.a. hjá henni Elísubetu vinkonu minni, en hún ber þann eftirsótta titil að vera drotting, svona fyrir þá sem vissu það ekki ;). Alveg ágætt að eyða sunnudögum með henni og drekka te undir berum himni. Svo er víst búið að tilefna mig til óskarsverðlaunana eftir frammistöðu mína í verkinu BIG MAMA 2!
Svo um næstu helgi er leikrit nokkuð á Stokkseyri … en þar er á ferð söngleikur með Bítlaþema ( verð að mæta þar sem ég er náskyld einhverjum John Lennon :S )…Auðvitað læt ég sjá mitt góða smetti þar inni og ætla að ég að taka nokkra valinkunna góðkunningja mína með t.d. Pitt og frú, Beckham hjónin, Jennifer Aniston (verð samt að passa að hún og Pitt fari ekki að slást þannig ég býð SPIEDERMAN með til að passa það) einng koma þessar litu gellur þarna sem elta mann á röndum Hillary og Lindsay nokkur Lohan (eru að gera mig brjálaða! ), og auðvitað kemur Leonardo með, en ég er enn að reyna að bæta upp höfnunina sem hann fékk þegar ég sagði nei við hlutverkinu, það var ekkert illa meint sko en hann tók því eitthvað illa… U2 á bara allann minn tíma núna.

Ég er búin að biðja lífverðina mína að plögga okkur góðum sætum og verðum við víst á fremsta bekk, sem ég tel vera nokkuð gott. HEKLA súperdansari með meiru er að dansa í verkinu, en hún á langan feril að baki sem dansari, en hún hefur meðal annars dansað með íslenska dansflokknum sem og hinum konunglega-balletnum í París. Einnig hefur hún komið fram í mörum heimsþekktum myndum t.d. GREASE, FLASH DANCE OFL.. og svo verið dansari hjá hinum og þessum boy-böndum. En allavega endilega að koma og sjáið ædolin ykkar sem og ÞETTA MEISTARASTYKKI sem ætlaði að dansa í en gat ekki vegna tónleika-undirbúnings ;)

Vegna allra þeirra anna sem eru farmundan gáfu allir mínu ágætu kennarar mér frí til að sinna skyldum mínum.. en ég fékk það aðeins í gegn ef ég myndi gefa þeim eiginhandaráritun. Að sjálfsögðu fengu þeir vilja sínum framgegnt enda búnir að fræða mig um hin ýmsu málefni. ;) Ekki allir jafnheppnir og ég að vita allt um Halla Lax, Freud kallinn og Napóleon.

En hvað segið þið eru ekki allir tilbúnir að mæta í stjörnuteitið sem verður í Ráðhúsinu næsta laugardag... man samt ekki alveg verð að tala við umbann minn… En frétti að það ætti að vera eitthvað ball þar á vegum leikfélagsins hér, en ég fékk það í gegn að halda teiti þar og er leikfélagið minn ágæti styrktaraðili.. búið að finna hljómsveit og alles, OHH HVAÐ ÞAÐ ER YNDISLEGT AÐ VERA STJARNA! – aldurstakmarkið er 20 ár og eru allir hjartanlega velkomnir eða þeir sem eiga til litlar 1500 krónur í vasanum sínum :D. En er það ekki bara málið að kíkja í minn ágæta , gamla, heimabæ ( er búsett í Ölpunum núna, mjög svo kósí að vera þar) og skélla sér í smá teiti?? Held það bara, þetta verður STJÖRNUVEISLA ársins því að þarna munu allir helstu leikar Hollywood mæta ;) ásamt nátla stjörnum leikritsins hér.
Við sjámust þá bara þá.. var að fá símtal frá Hvíta – húsinu en það var einhver Buss??!! sem var að biðja mig um að leysa sig af sem forseti en allavega verð að þjóta einkaþotan bíður ;)

NB - Heyri bara í ykkur,,, minni á gestó, skoðanir og svo auðvitað á að fylgjast með í Séð og heyrt, DV, Hér og nú, því ef þið skiljið ekki enskuna er um að gera að skoða þessi ágætu rit sem eru hér heima, annars getið þið alltaf líka gluggað í þessu erlendu eða farið á google.com og skrifað mitt fagra nafn þar og fengið allra nýjustu fréttir… en þarf að þjóta þotan bíður…

Bæjó Jón Spæjó….

HELGA, Búmm haukur HÓLM!

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 18:29:20 / Helga

Gömlu góðu dagarnir... - sakna þeirra :)

Hæ hæ og hó...

Var rétt í þessu töluðu orðum að skoða gamalar myndir sem leyndust í tölvunni minni síðan úr bekkjarferð sem farin var á REYKI Í HRÚTAFIRÐI hér um árið.. látum myndirnar tala sínu máli ;)

                       gamlrar myndir 002

Hér eru: Rakel, Guðrún Lára, Heiðrún ;), Gerstný, Elísabet :) og Henný.

                gamlrar myndir 003

Hér eru: Elísabet fléttu gella, Örvar, Henný, Heiðrún sem er búin að breytast ekkert smá! og svo held ég að þetta sé Jón Auðunn þarna aftast ;)

  gamlrar myndir

Hérna eru kéllur sem heita: Heiðrún Helga, Henný, Júlíana, Karitas, Karen og svo hún Yrsa sem er aldeilis búin að breytast líkt og hun Heiðrun og KAritas... hehe :D

En svo er svona ein auka sem bara var algjört MUST!!! smá módelfílingur heeh

gamlrar myndir 001

ÞETTA ERU SÚPERMÓDELIN: ELÍSABET, HEKLA OG GUÐRÚN :) ALVEG SVONA SVKA SÆTAR :) - varð að vera með alveg DREP :D

En vonandi nutuð þið skemmtilegra mynda... á margar fleiri sem ég get skellt inn ef vilji er fyrir því.. en er farin í ljós (að brenna á augnlokunum :P)

Bæjó Jón Spæjó..

HELGA


» 12 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 12:33:29 / Helga

Og gettu nú? - Neits! glætan ég nenni því sko ekki!

Hæ hæ og góðan dag.. en einn leiðindardagurinn runnin upp og ég að mygla úr leiðindindum eins og vanalega... :(

Hef bara voða lítið að segja nema að það er bara KLIPPING OG LITUN Á FÖSTUD. OG ÞÁ VERÐUR ALLT TEKIÐ Í GEGN ;) kannski maður panti sér einn tíma í ljósum og brenni einu sinni vel á augnlokunum.. Talandi um það vá hvað það var FYNDIÐ! ég var eitt sinn nýbúin í ljósum og kom í skólann rauðari en allt og auðvitað, auðvitað BARNN MÍN Á AUGNLOKUNUM... nei ekki nóg með það.. það fyrsta sem fólk spyr mig er : "AFHVERJU ERTU MEÐ RAUÐAN AUGNSKUGGA!?" er fólk ÞORSKAHEFT!! já held það bara... þetta er eins og að spyrja ERTU HÁLFVITI.. Ég svaraði reyndar bara nei... og ef svo væri hvað væri þá að því!!

Ég veit ég hef aldrei getað svarað fyrir mig og er ekki að fara geta það núna frekar en fyrri daginn... þarf að fara bara í einkatíma í að skjóta til baka.. Vill einhver kenna mér réttu brögðin?? EINHVER?

En ég var búin að veðja við Hófi að ég myndi blogga á frönsku og hér kemur það:

Bonjour mon ami, mon nom est Helga et j'ai 19 ans. Je vis dans une ville laide appelée Þorlákshöfn. Je déteste cette ville !L'odeur n'est pas là-bas celle gentille. Maintenant je suis ici dans l'école et elle est très ennuyeuse. Je souhaite que je sois à la maison en ce moment, dormant dans mon lit merveilleux.

J'aime dormir il est TRÈS bon. Mais maintenant je dois aller mange. vous vois des types plus tard. ok ?
Kveðja Helga sem er alveg að brillerí í frönskunni ;)

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 23:29:16 / Helga

JUKKA SVENSEN,,,

Á fallegu landi norðanlega á jörðinni er eins og fyrr segir fagurt land sem dýrategundin Homo Sapiens Sapiens kallar Svíþjóð, eða á góðu máli er kallað er íslenska.

Á þessu landi býr ung stúlka sem ber það skemmtilega heiti, JUKKA SVENSEN og er hún að bíða eftir pilti sem hyggist hefja þar nám. Hún er orðin mjög leið á biðinni og er búin að taka námskeið í íslensku til þess að geta átt líflegar samræður við þennan ákveðna dreng.
Þannig að SÆVAR – EKKI LÁTA HANA JUKKU SVENSEN BÍÐA LENGUR EFTIR ÞÉR! Hun er búin að borga offjár í íslenskunám og þú kemur svona fram! Skamm skamm… og hana nú ákveddu þig drengur og ekkert VÆL! (Ég veit ég er klikk :D ættir að vera orðin vanur að hlusta á ruglið í mér :) )

ÁFRAM SABBi - ég styð þig í þessu :)

Kveðja Helgí hjónabandsmiðlari ;)

» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Dagsetning
28. janúar 2012